Landið eitt kjördæmi og jafn kosningaréttur

06.01.2011 10:36

Málstofa 12. janúar kl. 12.15 í stofu 102 Háskólatorgi

Atkvæði kjósenda í dreifbýli hafa ávallt haft meira vægi í kosningum til Alþingis á Íslandi en kjósenda í þéttbýliskjördæmum. Um árabil hefur verið rætt um leiðir til að tryggja jafnan  kosningarrétt í íslensku kosningaskipulagi.  Ein leið sem bent er á til að jafna kosningarétt, er að gera landið allt að einu kjördæmi.

Á málstofunni verður rætt um hvort rétt sé að jafna kosningarétt að fullu og hvort því markmiði verði best náð með því að breyta landinu í eitt kjördæmi. Rætt verður um kosti og galla slíkrar breytinga bæði frá sjónarhóli stjórnmálaflokka og aðstöðu kjósenda í landinu til að hafa áhrif. Þá verður fjallað um hvort aðrar leiðir séu vænlegri við þróun kosningaskipulags hér á landi.

Frummælendur á málstofunni eru:
Dr. Grétar Þór Eyþórsson prófessor við Háskólann á Akureyri og
Dr. Ólafur Harðarson prófessor og forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.

Fundarstjóri er Björg Thorarensen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.

Allir velkomnir.

Fara í fréttalista